PGA nafnið stendur fyrir hefð, sögu og gæði. Skammstöfunin
stendur fyrir Professional Golfers Association, eða Samtök
atvinnukylfinga.
Fyrsti atvinnukylfingurinn var Old Tom Morris, en hann vann
British Open fjórum sinnum, síðast 1867, þá 46 ára og heldur
titlinum sem elsti Open sigurvegari frá upphafi. Old Tom var
golfkennari á St. Andrews.
PGA var stofnað í London þann 09. september árið 1901. 59
golfkennarar og 11 aðstoðarkennar gengu í félagið við stofnun þess.
Það var John H Taylor sem var driffjöðurin og maðurinn sem öðrum
fremur á heiðurinn af stofnun þessa fornfræga félags. Taylor vann
British Open 1894, 1895, 1900, 1909 og 1913.
Þeir sem gerðust atvinnumenn á þessum tíma voru afburðakylfingar
sem tóku að sér kennslu, mótahald, kylfusmíði og viðgerðir og í
mörgum tilfellum sáu þeir um golfvallargerð. Síðan þá hefur mikið
vatn runnið til sjávar og í dag eru félagar í Breska PGA 7000
talsins.
Margir breskir golfkennarar fóru til Bandaríkjanna á þessum árum
og hjálpuðu til við útbreiðslu íþróttarinnar. Á árunum í kringum
aldamótin 1900 fjölgaði golfklúbbum í Bandaríkjunum um 1000 og
eftirspurn eftir skoskum golfkennurum var mikil. Golfkennarar í
Bandaríkjunum stofnuðu sín samtök, PGA of America árið 1916. Í dag
er PGA of America stærstu samtök sinnar tegundar í Bandaríkjunum
með 28.000 félaga. Þekktastur þeirra er án efa Tiger Woods.
Fyrsti atvinnukylfingurinn sem kom til Íslands var Walter
Anderson. Hann var fenginn til að kenna og sjá um nánast allt sem
viðkom hinum nýstofnaða Golfklúbbi Íslands. Hermann Jónsson
ráðherra sá honum fyrir inniaðstöðu og 12. jan 1935 hóf hann störf
sín hér. Hann átti mikinn þátt í því að koma golfinu af stað hér á
landi og hjálpaði auk þess til við uppbygginguna á golfvellinum í
Laugardalnum. Hann fór einnig norður til Akureyrar og hjálpaði til
við að koma íþróttinni af stað þar.
Frá 1935 hafa margir erlendir golfkennarar komið til starfa hér á
landi. Sumir í stuttan tíma en aðrir dvöldust hér lengur. (Nánari
upplýsingar um golfkennara sem komu til Íslands er að finna á
www.pga.is)
Stofnun PGA of Iceland.
Fram að 1988 voru nánast eingöngu enskir golfkennarar á Íslandi.
Undantekningin var Þorvaldur Ásgeirsson sem hafði sinnt golfkennslu
um árabil.
Þeir golfkennarar sem hér komu til að kenna áttu það sameiginlegt
að vera miklir keppnismenn og höfðu áhuga á því að keppa undir
merkjum Íslands. Það var hvatinn sem kom þeim John Drummond,
Golfklúbbi Reyjavíkur (1984 – 1991), David Barnwell, Golfklúbbi
Akureyrar (1986 – enn starfandi á Íslandi) og Phill Hunter,
Golfkúbbi Suðurnesja (1986 – 1996) af stað og þeir fóru að ræða
stofnun PGA á Íslandi. Þeir stofnuðu svo PGA of Iceland veturinn
1988.
PGA of Europe.
Sama ár fór John Drummond sem fulltrúi Íslands á undirbúningsfund
um stofnun PGA of Europe. Formlega var PGA of Europe stofnað 1990
af 20 þjóðum. Í dag eru aðildarfélögin orðin 37 (þar af 7 lönd utan
Evrópu) með samtals 15.000 félagsmenn.
Markmið PGA of Europe var að samræma kröfur um golfkennaranám og
setja staðla um ákveðna þætti námsins. Í byrjun voru aðeins fjögur
lönd sem uppfylltu skilyrði PGA of Europe um “minimum training
standard”, Svíþjóð, Bretland, Frakkland og Ítalía. Í dag eru 18
aðildarfélög með þessa viðurkenningu.
PGA á Íslandi hefur góða von um að komast í þennan hóp seinni
hluta ársins 2009.
Makmið PGA á Íslandi er að menntun og gæði kennslunnar séu á við
það besta sem þekkist í Evrópu. Til að ná þeim markmiðum stendur
PGA fyrir Golfkennaranámi og endurmenntunarnámskeiðum.
Golfkennaraskóli PGA og GSÍ var settur á á vormánuðum 2006. Námið
tekur 30 mánuði og fylgir öllum lágmörkum PGA of Europe. 30
sérfræðingar hafa kennt við skólann. Námið skiptist í tvo
meginþætti, Íþróttafræði og Golfhluta. Nemendur þurfa að vera með
lágmarksforgjöf; karlar með 5,4 og konur með 7,4 til að geta hafið
nám. Einnig þurfa nemendur að skila inn skorkortum með hringjum
spiluðum á viðurkenndum mótum þar sem lágmarksárangur er
sýndur.
Fyrstu nemendur Golfkennaraskólans útskrifuðust 10. mai 2008. Við
það bætast 11 nýir golfkennarar í PGA á Íslandi og nú eru 24
fulllærðir golfkennarar í PGA. Að öllu óbreyttu munu 10 nýir
kennarar útskrifast og bætast í hópinn árið 2009.
PGA kennari er fagmaður sem gengið hefur í gegnum nám og lært
kennslufræði, golftækni og önnur fræði sem tengjast beint starfinu.
Treystu á PGA fagmann þegar þú vilt bæta þinn golfleik.
Upplýsingar um PGA golfkennara er að finna á heimasíðu PGA á
Íslandi, www.pga.is
PGA á Íslandi. Arnar Már Ólafsson. Engjavegur 6, 104
Reykjavík
Sími: +354-5144055. Fax: +354-5144051. netfang: pga@pga.is
arnarmar@golf.is