PGA >
Golfkennaraskóli PGA á Íslandi og GSÍ

Golfkennaraskóli PGA og GSÍ var settur á á vormánuðum 2006.  Nú tekur skólinn inn nýjan árgang og verður þetta þriðji árgangur Golfkennaraskólans.

Námið tekur 30 mánuði og fylgir öllum lágmörkum PGA of Europe.  Námið skiptist í tvo meginþætti, Íþróttafræði og Golfhluta.  Nemendur þurfa að vera með lágmarksforgjöf til  að geta útskrifast sem golfkennarar; karlar með 5,4 og konur með 7,4.  Einnig þurfa nemendur að skila inn skorkortum (Playing Ability Test),  með hringjum spiluðum á viðurkenndum mótum þar sem árangurinn þarf að vera + 15 yfir SSS vallar á tveimur hringjum. 

Heildar tímafjöldi með heimavinnu og prófum er í kringum 580 klst.  Kennsla  fer fram á veturnar og er kennt í viku í senn.  Fjöldi námskeiða á hverri önn eru þrjú til fimm eftir atvikum.  Sumarið er notað til að vinna að þeim verkefnum sem skólinn setur fyrir, auk þess sem nemendur fá tækifæri til að kynnast starfinu.  Æskilegt er að nemendur séu undir handleiðslu PGA kennara í sínum klúbbi.

Aðalfögin eru Golftækni og Golfkennsla, meðal annara faga er Golfsagan, Golfvallarumhirða og golfvallargerð, Golfreglur, Golfáhöldin og kylfuviðgerðir svo eitthvað sé nefnt.

Stór hluti af náminu er Íþróttafræði. Undir íþróttafræði falla fög eins og

Íþróttameiðsli, Líffræði, Þjálfunarfræði, Kennslufræði og Sálfræði.

Af þessari upptalningu má sjá að nemendur fá mjög alhliða kennslu sem nýtist þeim jafnt í barna- og unglingakennslu sem og í vinnu með afreksfólki.

 

Námið kostar 225.000 Kr. á hverja önn, samtals 675.000.  

 

Það er mikilvægt fyrir þá sem ætla sér a stunda vinnu eða annað nám með skólanum, að skipuleggja sig vel, því það fer mikill tími í verkefni og heimavinnu.