Golfkennarskóli PGA á Íslandi og GSÍ tekur inn nýjan hóp í skólann á næsta ári. Lágmarksfjöldi er 10 nemendur.
Námið tekur yfir 30 mánuði og er því útskrift fyrirhuguð fyrir þennan nýja hóp í september 2011.
Skólinn hefur verið undir eftirliti European PGA og hafa þeir tekið út námið. Reiknað er með því að skólinn fái viðurkenningu frá Minumum Training Standard Committee í október á næsta ári. Með því yrði nám skólans viðurkennt og þeir sem úr honum útskrifast með Evrópuréttindi.
Golfkennarskólinn hefur þegar útskrifað 11 nemendur og einn hópur er við nám. Í þeim hópi eru 10 nemendur og taka þeir lokaprófin í mai. Útskrift er fyrirhuguð í júlí 2009.
Umsóknarfrestur um nám 2009 – 2011, er til 01. febrúar og stefnt er að því að hefja námið í 04. mars.
Forgjafartakmörk eru 5,4 fyrir karla og 7,4 fyrir konur.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu PGA, www.pga.is
Allar nánari upplýsingar veitir Arnar Már Ólafsson í síma 896-0693, eða með tölvupósti undir arnarmar@golf.is