Skammstöfunin "PGA" stendur fyrir Professional Golfers
Association, eða Samtök atvinnukylfinga. Samtökin á Íslandi voru
stofnuð veturinn 1988 af þeim John Drummond, David Barnwell og Phil
Hunter. Í ársbyrjun 2010, eru félagsmenn 62 talsins þar af 6 með
aukaaðilid. Til að fræðast nánar um félagið er bent á síðuna "Um
félagið". Þar er saga PGA rakin í stuttu máli og hægt er að nálgast
fréttabréf félagsins og annað útgefið efni.
PGA á Íslandi rekur Golfkennaraskólann, sem stendur fyrir faglegu og krefjandi golfkennaranámi. Námið er byggt á því besta sem þekkist erlendis. Á síðunni "Golfkennaraskólinn" eru ýmsar upplýsingar um starfssemi skólans, m.a. námskrá, yfirlit yfir kennara og umsóknareyðublaðið.
Eitt af meginmarkmiðum heimasíðunnar er að koma á framfæri
upplýsingum til kylfinga á Íslandi um hvar hægt er að finna PGA
golfkennara. Á síðunni "Félagsmenn" er yfirlit yfir alla PGA
félagsmenn á landinu. Einnig er hægt að smella á hlekkina hér fyrir
neðan til að nálgast þessar upplýsingar.
Höfuðborgarsvæðið / Vesturland / Norðurland / Austurland / Suðurland / Reykjanes / Erlendis